Hljóðdempandi
SILKIPRENT
og
MÁLVERK
STÚDÍÓ SUÐ:

MARKÚS BJARNASON er hönnuður og listamaður sem vinnur á mörkum hönnunar og myndlistar. Verkin eru handsmíðað frá grunni og eru unnin á hör, innihalda hljóðdempandi þéttull og römmuð inn í gegnheila eik.
SÉRPÖNTUN sérsniðin að þínu rými. Markús tekur við sérpöntunum, smíðar og málar málverk í þeirri stærð sem þig dreymir um. Hafðu samband á arney@studiosud.is fyrir frekari upplýsingar um listaverkin, sérpantanir eða til að bóka heimsókn á vinnustofuna.
Lyftu
KYNNING
hljóðvistarlausn
ÓSÝNILEG
Hljóðvist eða hljómgæði rýmis er mikilvægur þáttur til þess að einstaklingum líði vel í umhverfi sínu. Þegar hljóðvist er léleg getur myndast mikið bergmál og óþægilegar tíðnir magnast upp. Slæm hljóðvist hefur áhrif á einbeitingu, heilsu og lífsgæði.
Hljóðvistarlausnir á markaðnum bera oft með sér skrifstofulegt yfirbragð eða eru augljósar í tilgangi sínum. Stúdíó Suð nálgast þetta öðruvísi og þróar lausnir sem eru fyrst og fremst listaverk en eru í leiðinni ósýnilegar hljóðvistarlausnir.
MARKÚS BJARNASON er hönnuður og listamaður sem vinnur á mörkum hönnunar og myndlistar. Hann lærði grafíska hönnun og sjónræn samskipti við Listaháskóla Íslands. Hann hefur margra ára reynslu af hönnun og mótun hljóðrýma og hefur lokið námskeiðum í hljóðvist. Hann sameinar þannig hagnýta reynslu og fagþekkingu á hönnun, list og hljóðvist. Allt er handsmíðað af Markúsi sjálfum frá grunni en verkin eru unnin á hör, innihalda hljóðdempandi þéttull og römmuð inn í gegnheila eik.
VALDAR SÝNINGAR:




